Kammerhljómsveit Akureyrar 1986 – 1993

Jón Hlöðver Áskelsson

Tildrög að stofnun Kammerhljómsveitar Akureyrar má rekja til ársins 1984, en þá hafði nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins sem fjallaði um „hvernig vinna megi að því að efla Akureyri sem miðstöð mennta og vísinda utan höfuðborgarinnar“ skilað inn sínu áliti. Þar sem m.a. var lagt til að við Tónlistarskólann á Akureyri verði stofnuð kammerhljómsveit til þess að tryggja búsetu hæfra og vel menntaðra hljóðfæraleikara á Akureyri.

Haustið 1986 gengust kennarar í Tónlistarskólanum fyrir stofnun kammerhljómsveitar, sem þá þegar nefnd Kammerhljómsveit Akureyrar.

Haustið l988 var stofnað áhugamannafélag um rekstur Kammerhljómsveitar á Akureyri og var tilgangurinn meðal annars sá að efla starfsemi Kammerhljómsveitarinnar og að vekja áhuga á leik hennar og málefnum. Félagið annaðist rekstur hljómsveitarinnar með fulltingi og aðstoð Akureyrarbæjar til ársins 1993.

Störf stjórnar Félags áhugafólks um Kammerhljómsveit Akureyrar einkenndust alltaf af baráttunni fyrir því að tryggja hljómsveitinni öruggari rekstrarskilyrði.

Á aðalfundi Áhugamannafélagsins 16. september 1992 voru kynnt drög að þríhliða samningi hljómsveitarinnar við ríki og bæ.

Síðar vann stjórnin ásamt hljómsveitarráði að því að samningur yrði gerður og að Kammerhljómsveit Akureyrar fengi fast framlag á fjárlögum ríkisins. Fulltrúar okkar funduðu með Þórunni Hafstein, aðstoðarmanni menntamálaráðherra, og Tómas Ingi Olrich þingmaður var milligöngumaður við menntamálaráðuneytið.

Stjórnin fól í september 1992 nefnd að semja drög að starfsreglum fyrir hljómsveitina.

Í nefndinni sátu Guðrún Þórarinsdóttir, Magna Guðmundsdóttir og Anna Podhajska.

Á hljómsveitarráðsfundi 20. janúar 1993 voru nýjar starfsreglur fyrir Kammerhljómsveitina samþykktar.

Það var ákveðið, þegar hljómsveitin kæmist inn á föst fjárlög þá yrði að breyta nafni hennar, og var ákveðið að nafnið breytist í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, einnig að sú hljómsveit myndi starfa eftir nýrri skipulagsskrá, en engin sérstök lög voru áður til fyrir Kammerhljómsveit Akureyrar. Gunnar Frímannsson gerði drög að þeirri skipulagsskrá.

Á aðalfundi Tónlistarfélags Akureyrar haustið 1993 var samþykkt að ganga til liðs við Félag áhugafólks um Kammerhljómsveit Akureyrar undir nafni Tónlistarfélagsins.

Þau sjö starfsár, 1986 – 1993, sem Kammerhljómsveit Akureyrar starfaði voru haldnir 31 sinfónískir tónleikar, flestir á sjötta starfsári. Fastastjórnandi hljómsveitarinnar um árabil var Roar Kvam og framkvæmdarstjóri hennar lengst af var Jón Hlöðver Áskelsson.

Það var merkur áfangi 24. október 1993 þegar SN tók við því hlutverki sem aðstandendur Kammerhljómsveitarinnar höfðu stefnt að með fyrstu tónleikum sínum í Akureyrarkirkju.

Svo vitnað sé í orð þáverandi menntamálaráðherra, Ólafs G. Einarssonar, í efnisskrá þá var honum ljós þáttur Kammerhljómsveitar Akureyrar í þeim áfanga, en þar segir: „Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verður ekki til af engu, fremur en aðrar merkilegar nýjungar. Hún rís á þeim grunni sem Kammerhljómsveit Akureyrar hefur lagt með myndarlegri starfsemi undanfarin ár og hefur jafnframt stuðning af rótgrónu starfi Tónlistarskólans á Akureyri.“